Betri Hundar Vefverslun
Voila Ævintýra Klemma
Voila Ævintýra Klemma
Couldn't load pickup availability
Adventure Clip eða Ævintýra Klemman er fjölnota klemma sem gerir Ultimate Treat Pouch™ nammitöskuna enn fjölhæfari.
Það er einfalt að festa og losa klemmuna með annarri hendi. Þú ýttir ofan á hana með þumalinum til að opna klemmuna, komdu henni fyrir þar sem þú vilt hafa hana og slepptu. Löm úr ryðfríu stáli smellir klemmunni aftur saman og heldur henni fasta á sínum stað.
Festu hana við vasa, bakpoka, barnavagn eða taum. Einnig er hægt að festa hana á belti eða renna beltinu í gegnum raufina þegar þú vilt bera töskuna þannig. Klemmuhúsið er úr veðurþolnu fjölliðuefni og lömin úr ryðþolnu stáli. Klemmuna má þvo í uppþvottavél.
Hún er fest á töskuna á sama hátt og upprunalega festingin og passar bæði á eldri og nýrri útgáfur af Ultimate Treat Pouch™.
Mini útgáfa: Nett og fyrirferðarlítil hönnun sem hentar sérstaklega vel fyrir mjórri belti og minni vasa. Passar eingöngu á Mini Ultimate Treat Pouch™.
Standard útgáfa: Passar á Standard, Large og Lokanlegu útgáfur af Ultimate Treat Pouch™. Passar ekki á Mini stærðina.
Share
