Betri Hundar Vefverslun
Volià! nammitöskur
Volià! nammitöskur
Couldn't load pickup availability
Nammi taskan er framleidd úr hágæða matvælavottuðu sílikoni og er fjölnota: hann getur bæði verið nammi taska fyrir hundinn þinn og breyst í vatnshelda drykkjarskál á ferðinni.
Einkaleyfisvarið hönnunarkerfi með gorma lokun gerir töskuna auðvelda í notkun og tryggir að hann lokist vel. Breitt op veitir fljótlegan aðgang að nammi, og létt, auðstillanlegt belti helst á sínum stað jafnvel við krefjandi athafnir.
Taskan er hagkvæm og auðveld í þrifum, frábært kerfi til að bera með sér fóður eða nammi.
Mini taskam rúmar allt að 340gr af nammi eða 355ml af vökva.
Standard taskan rúmar allt að 475 ml af nammi.
Large taskan rúmar allt að 710 ml af nammi
Lokanlega taskan um 590 ml getu. Fyrsta loftþétta og lokanlega nammitaskan í heimi, hugsaðan í þaula með gorma lokun, breiðri opnun sem gerir auðvelt að ná í nammi.
Með vörunni fylgir:
- Foruppsett beltishylki
- Foruppsettur D-hringur fyrir aukahluti
- Sterkt og stillanlegt Ultimate belti
- Olíubundið smurefni
Share

Klárlega uppáhalds þjálfunartaskan mín, það er sjúklega næs að geta valið hvort hún sé opin eða lokuð. Ég hafði smá áhyggjur að hún yrði of lítil en þær áhyggjur flugu út um gluggann eftir fyrstu notkun enda tekur taskan næstum því heila lifrarpylsu þannig að það ætti að duga flestun.
Frábær vara
Góð stærð, auðveld í notkun og fullkomin fyrir íslenskt veðurfar